Stílfærð teikning af íslensku fjalli

Persónuleg lögmannsþjónusta með áratugareynslu.

Sérhæfð ráðgjöf og hagsmunagæsla fyrir einstaklinga og fyrirtæki — með réttindi til málflutnings fyrir Héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti.

Hafa samband
Um Anno 1901 lögmannsstofu

Lögmannsstofan samanstendur af lögmönnum sem hafa yfirgripsmikla reynslu á flestum sviðum lögfræðinnar. Persónuleg þjónusta er aðaláhersla stofunnar, ásamt vönduðum og skjótum vinnubrögðum.

Sérsvið

Við sérhæfum okkur í eftirfarandi.

Áratugareynsla í innheimtu slysabóta: umferðarslys, vinnuslys og önnur skaðabótamál. Ókeypis ráðgjöf um slysamál og árangurstengd innheimta bóta — bókaðu frían tíma í viðtal með tölvupósti á anno@anno.is.

Lögmenn stofunnar eru með réttindi á öllum dómsstigum, Héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti.

Lögmannsstofan hefur sérhæft sig í alhliða þjónustu við fyrirtæki af ýmsum stærðum. Lögmenn stofunnar hafa áratugareynslu á þessu sviði.

Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu á sviði fjármálaréttar, með ráðgjöf til verðbréfafyrirtækja og banka. Einnig hafa lögmenn stofunnar verið í stjórnum fjármálafyrirtækja.

Lögmannsstofan hefur mikla reynslu af því að útbúa samninga fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Lögmenn stofunnar hafa áratugareynslu á sviði sakamálaréttar, sem verjendur og réttargæslumenn. Lögmenn stofunnar þekkja þetta réttarsvið mjög vel hvort sem um er að ræða minni eða stærri mál.

Sifjaréttur er eitt af sérsviðum stofunnar, en á þessu sviði hefur einkum einn lögmaður stofunnar sérhæft sig og hefur mjög yfirgripsmikla þekkingu á sviðinu.

„Laws are the sovereigns of sovereigns.“

Louis XIV

Lögmenn

Lögmenn stofunnar

Lögmenn stofunnar veita sérhæfða ráðgjöf með persónulega þjónustu að leiðarljósi.

Karl Georg Sigurbjörnsson

Hæstaréttarlögmaður / eigandi

Hæstaréttarlögmaður og einn eigenda stofunnar. Gegnir jafnframt stöðu kjörræðismanns Lettlands á Íslandi.